Vara · í þróun
GuideMe
Ratleikir um Ísland. Gakktu að staðnum, heyrðu söguna, leystu áskorunina.
GuideMe breytir gönguferð í ratleik. Á kortinu eru staðir merktir með X; þeir opnast þegar þú gengur að þeim. Hver staður segir þér sögu sína og setur þér svo fyrir verkefni.
SkýringarmyndAppið er í þróun — myndin sýnir hugmyndina, ekki skjámynd.
Svona gengur ratleikur fyrir sig
-
Veldu ratleik
Hver ratleikur á sitt svæði — bæjarhluta, strandlengju eða slóða úti á landi.
-
Gakktu af stað
Staðirnir eru merktir með X á kortinu og þú ræður í hvaða röð þú ferð. Leikurinn er frjáls — engin fyrirfram ákveðin leið.
-
Staðurinn opnast
Þegar þú kemur að X-inu opnast staðurinn og segir þér sögu sína: hvað gerðist hér, hver bjó hér, hvers vegna staðurinn heitir þetta.
-
Leystu áskorunina
Hverjum stað fylgir verkefni — spurning, ljósmyndaverkefni eða teikning. Leyst verkefni gefa stig.
Í appinu
Frjáls leið
Þú velur sjálf hvaða X þú tekur næst. Ratleikurinn er ekki lína heldur svæði.
Sagan á staðnum
Efnið er skrifað fyrir staðinn sjálfan og birtist þegar þú stendur á honum.
Áskoranir
Spurningar, ljósmyndaverkefni og teikniverkefni. Myndirnar þínar fara aldrei úr símanum.
Stig og stigatöflur
Stig safnast fyrir leyst verkefni. Á stigatöflunni birtist nafnlaust auðkenni, ekki nafnið þitt.
Tvö tungumál
Allir ratleikir eru bæði á íslensku og ensku.
Enginn aðgangur
Engin skráning, ekkert netfang, ekkert lykilorð. Þú byrjar bara að ganga.
Útgáfa
Væntanlegt í App Store og Google Play.
GuideMe er í þróun fyrir iOS og Android. Þegar appið kemur út bætast tenglar í verslanirnar hér á síðuna.
Spurningar um appið? Sjá aðstoð eða sendu okkur póst á anjo@anjo.is. Um meðferð gagna má lesa í persónuverndarstefnunni.