Anjoehf EN · In English

Aðstoð

Aðstoð við GuideMe

Ef eitthvað stendur á sér skaltu senda okkur línu. Við svörum á íslensku og ensku, eins fljótt og við getum.

anjo@anjo.is

Algengar spurningar

Hvernig opnast staður?

Staðirnir í ratleiknum eru merktir með X á kortinu. Síminn ber saman staðsetninguna þína og staðinn og opnar hann þegar þú ert kominn nógu nálægt. Þú þarft ekki að skanna neitt eða slá inn kóða — það nægir að ganga þangað.

Til að þetta virki þarf appið að hafa leyfi til að nota staðsetningu á meðan þú spilar. Staðsetningin er unnin í símanum og er aldrei send til okkar.

Ekkert gerist þótt ég sé komin á staðinn

Þá er GPS-merkið yfirleitt of ónákvæmt. Þetta hjálpar:

  • Gakktu úr skugga um að staðsetningarleyfi sé virkt og að nákvæm staðsetning sé leyfð (ekki „um það bil“).
  • Farðu þar sem sést vel til himins. Háir veggir, þröng sund, gil og þéttur skógur trufla merkið.
  • Bíddu í tíu til tuttugu sekúndur — nákvæmnin batnar oft eftir smástund.
  • Gakktu nokkur skref í hring í kringum X-ið.
  • Slökktu á orkusparnaði; hann getur dregið úr tíðni staðsetningarmælinga.

Ef staðurinn opnast samt ekki, sendu okkur póst á anjo@anjo.is og segðu okkur hvaða ratleik og hvaða stað um ræðir.

Get ég byrjað ratleik upp á nýtt?

Já. Ratleik má endurstilla úr yfirliti leiksins í appinu; þá núllast fundnir staðir og stigin fyrir þann leik og þú getur gengið hann aftur frá byrjun.

Finnirðu ekki valmöguleikann, hafðu samband á anjo@anjo.is og láttu leikmannsauðkennið þitt fylgja með, þá getum við aðstoðað.

Þarf ég að stofna aðgang?

Nei. GuideMe hefur enga notendaaðganga og biður hvorki um netfang né lykilorð. Appið býr til nafnlaust leikmannsauðkenni í tækinu og notar það til að halda utan um framvinduna.

Hvað verður um staðsetninguna mína og myndirnar?

Staðsetningin er unnin í símanum og fer aldrei til okkar. Myndir og teikningar úr verkefnum verða eftir í tækinu. Það eina sem sent er til okkar er nafnlausa auðkennið, auðkenni ratleiksins, stig, fjöldi fundinna staða og upphafs- og lokatími.

Nánar í persónuverndarstefnunni.

Á hvaða tungumálum er GuideMe?

Íslensku og ensku. Ratleikirnir sjálfir eru skrifaðir á báðum tungumálum.

Hvenær kemur appið?

GuideMe er í þróun og kemur í App Store og Google Play. Tenglar í verslanirnar bætast hér inn og á GuideMe-síðuna um leið og appið er komið út.

Fannstu ekki svarið?

Skrifaðu okkur.

anjo@anjo.is

Anjo ehf · Túngata 10, 225 Álftanes, Ísland